Í gærkvöldi var H.G. mjög slappur og var mjög ólíkur sér með 39°c hita og fór svo að kvarta undan verk í hnakkanum svo við drifum hann á læknavaktina því við vildum fullvissa okkur að hann væri ekki með heilahimnubólgu. Það var sem betur fer ekki raunin. Við erum kanski hálf móðursjúkir foreldrar en það er skárra en að vera kærulausir foreldrar. Í morgun vaknaði minn maður þvílíkt hress (allavegana miklu hressari en ég) hitalaus og sprækur leitandi af tölvuleik með Kalla Kanínu sem fylgdi Séríóspakka fyrir löngu síðan. Sá leikur er lögnu orðin ónýtur og var fargað fyrir nokkru án minnar eða H.G. vitundar. Það tók smá stund að útskýra þetta fyrir H.G. Núna er mamma hans orðin veik og löggst í rúmið. Allveg er ég til í að losna við þessa pest en líklega er ég næstur með hana.
Mér finnst þið ekkert móðursjúkir foreldrar. Vísa í athugasemd mína við síðustu færslu.
Það er satt.