Það er ótrúlegt hvað fólk getur verið pirrað á þessu ítalska djóki. Kannski hafa aðrir fengið meira af þessu en ég. Það var bara einn Ítali sem hefur sent mér ummæli. Ég hef aftur á móti tekið þessu vel og nú þegar sent viðkomandi “vina könnun” einhverskonar Gallúpkönnun sem ég fékk sent frá Birgi í gær. Hún er að sjálfsögðu á íslensku svo ég reikna ekki með að fá hana endursenda. Ég hef bara gaman af svona bulli.
Kvefið sem hefur hrjáð hina 2 heimilismeðlimina hefur náð til mín líka. Það er frábært eftir að hafa verið að vinna alla vikuna svo þá getur maður eitt helginni hér heima í veikindi. Þetta er náttúrulega verst fyrir H.G. sem er búinn að vera inni mest alla síðustu viku í vetrafríi í leikskólanum. Því mamma hans er búin að vera veik og er reyndar enn, en hún fór samt í skólann í dag og ætlar á morgun. Svona leikur lukkan við okkur þessa daganna.
Frábært að eignast svona nýja vini á netinu….og líka svona ítalska. En verðið þið ekki bara að fara sjóða gott nornaseyði úr kröftugum jurtum og drepa alla þessa sýkla .Ég vona að lukkan fari að leika við ykkur annan leik strax.Kannski bara póló.
Ég á ekki von að þessi vinátta sé til eilífðar, heldur meira að henni sé lokið núna.
Jú maður fer að troða einhverju jurtaseyði í sig. Reyndi koniak í gær með ágætis árangri.
Til hamingju með stóra strákinn.