Hr. H.G. er farin að gera töluverðar kröfur til mín um að vera með tiltækan brandara þegar hann biður mig um að segja einn slíkan. Ég er í stökustu vandræðum að finna nýja brandara. Því flestir brandarar sem ég kann eru ekki við hæfi barna eða of flóknir fyrir 5 ára. Ég er búinn að segja honum um tómatinn sem gekk yfir götu með ágætum árangri og með það góðum árangri að ég hef útvíkkað þennan brandara í allskonar grænmeti og ávexti. Og svo er það brandarinn um konuna sem fór með páfagaukinn sinn í strætó (sá brandari er sagður í óþökk mömmunar) en þykir samt fyndinn. Stuttir brandarar eru mjög óvinsælir og maður fær að heyra það um leið. Þetta er orðin það mikil pressa að ég hef farið á internetið til að leita af efni því ég hef ekki endalaust hugmyndaflug til að búa til brandara og tala nú ekki um fyrir svona töff krád. Yfir kvöldmatnum var ég mjög stoltur af sjálfum mér og sagði honum að ég hafi fundið brandara á internetinu. Það eitt og sér féll svo vel í kramið að hann hló í c.a. 30 sek. Hans brandarar eru aðeins öðruvísi og frumsamdir. Hann sagði mér einn þegar ég kom heim úr vinnuni um daginn.
“Það var einusinni kokkur að elda súpu svo var súpan svo heit að það komu spengingar upp úr súpunni og sprungu á hann svo hann brenndi sig á rassinum svo hann pissaði í súpuna, svo kom meistarinn, sem var ekki að baka kom og smakkaði súpuna og spýtti henni á vegginn og spurði hvaða skítafýlu súpa er þetta eiginlega?”
Það er bara eitthvð svo erfitt að toppa svona brandara án þess fara yfir mörkin. Þannig að ég held áfram að segja þessa draugfúlu brandara þar til hann fermist.
Eitt af uppáhalds lögunum hans er þetta (sennilega vegna Shrek 2 en ekki út af þetta er einn af uppáhalds tónlistarmönnum pabbans)
Sá eini sem mér dettur í hug fyrir krád eins og Hr. H.G. er um appelsínuna sem datt út í sjó en það var allt í lagi því hún skar sig í báta. Er þó ekki viss um að hún henti honum.
Hvernig er brandarinn um konuna sem fór með páfagaukinn í strætó?
Þið eruð bara fyndnir. En ertu búinn að segja honum frá smámæltu beljunni sem baular svona sssssssmuuu? þetta er sá eini sem ég get munað.
Það verður látið reyna á þessa brandara í dag.
Páfagauka brandarinn er svona:
Það var kona sem ætlaði að fara með páfagaukinn sinn í strætó. En það mátti hún ekki svo hún faldi páfagaukinn í nærbuxunum og settist í sæti svo kom maður og settist við hliðina á henni og sagði það er blessuð blíðan þá heyrðist í páfagauknum það er nú bara rok og rigning hér.
Hahaha ég hef aldrei heyrt þennan páfagaukabrandara. Hef bara heyrt um Nýjustu tísku sem ég get sagt þér ef þú manst hann ekki.
Hef heldur aldrei heyrt um smámæltu beljuna. Gaman að vera að uppgötva nýja brandara komin á þennan aldur.